Fréttir

true

Brýn þörf fyrir fleiri í bakvarðasveit heilbrigðisstofnana

„Vegna örrar fjölgunar Covid-19 smita með auknu álagi á heilbrigðiskerfið bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu…Lesa meira

true

Hvetur sveitarfélög til að stytta vinnuviku starfsfólks

Fulltrúaráð Kjalar stéttarfélags skorar á sveitarfélög í landinu að tryggja starfsfólki sínu styttingu vinnuvikunnar eins og samið var um í kjarasamningum. Í ályktun fulltrúaráðs Kjalar frá fundi þess 5. nóvember segir: „Sveitarfélögin verða að beita sér fyrir því að fram fari umbótasamtöl á hverjum vinnustað þar sem starfsfólkið útfærir styttinguna og ákveður hversu mikil hún…Lesa meira

true

Hollvinasamtök Borgarness gefa út götukort

Það eru ýmis verkefni sem Hollvinasamtök Borgarness standa fyrir. Í haust hafa samtökin merkt elstu húsin í gamla bænum og nýverið kom úr prentun götu- og þjónustukort sem teiknað er af Elínu Elísabet Einarsdóttur. Kortið er nú komið í dreifingu til fyrirtækja í Borgarnesi. „Hollvinasamtök Borgarness þakka öllum þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í þessu…Lesa meira

true

Bæjarstjórinn lofar samstöðu bæjarbúa og upplýsir um stöðuna

Mikið hefur mætt á bæjarstjórnendum á Akranesi, heilbrigðisstarfsfólki, fjölmörgum stofnunum og fleirum undanfarna daga vegna bylgju Covid-19. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fer í pistli á Facebook síðu sinni yfir stöðuna og þakkar skjót viðbrögð: „Verð að lofa samstöðu bæjarbúa við fréttum af hópsmiti hér á Akranesi. Saman getum við allt og það er útlit fyrir…Lesa meira

true

Óveðri er spáð á sunnanverðu landinu í nótt

Veðurstofan gerir ráð fyrir að hvassviðri 20-23 m/sek gangi yfir sunnanvert og suðvestanvert landið í nótt og er gul viðvörun í gildi vegna þessa á höfuðborgarsvæðinu og við Faxaflóa í nótt. Rokinu fylgir rigning við ströndina en slydda eða snjókoma verður inn til landsins og á fjallvegum. Viðvörun nær lengra fram eftir morgni á Suðurlandi,…Lesa meira

true

Borgarbyggð sendir frá sér yfirlýsingu vegna fasteigna í Brákarey

Síðastliðinn föstudag var birt yfirlýsing á vef Borgarbyggðar með fyrirsögninni; „Áskorun og ákall vegna Brákareyjar.“ Í henni er farið yfir forsögu þess að húsum í eigu sveitarfélagsins í Brákarey, sem byggð voru sem frystihús, sláturhús og fjárrétt, var lokað í febrúar síðastliðnum að kröfu eldvarnaeftirlits og byggingafulltrúa. Húsnæðið hafði þá um árabil verið í notkun…Lesa meira

true

Mælifells Centaur frá 1934 komið fyrir á Landbúnaðarsafni

Í gær var komið með merkilegan grip til varðveislu á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Þar var á ferðinni dráttarvél af gerðinni Centaur frá árinu 1934. Vélin er í eigu Þjóðminjasafnsins, en það var Kristján Helgi Bjartmarsson sem gerði við safnið samning um endurgerð vélarinnar, en hún var um tíma í eigu föður hans sr. Bjartmars…Lesa meira

true

Búist við að skólar verði opnir á morgun

Gert er ráð fyrir allar stofnanir á skóla- og frístundasviði Akraneskaupstaðar verði með starfsemi á morgun mánudag en þó er vitað að einhver skerðing mun verða á þeim stöðum þar sem starfsmenn eða börn eru í einangrun eða sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Þar segir jafnframt að kvöldstarf félagsmiðstöðvarinnar Arnadals muni verða…Lesa meira

true

Lítilsháttar fækkun í sóttkví milli daga

Lögreglan á Vesturlandi var nú fyrir stundu að birta tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví á Vesturlandi. Það fækkar um tvö smitaða í einangrun í landshlutanum, eru nú 141 en voru 139 í gær. Nú eru 105 í einangrun á Akranesi, 24 í Borgarnesi, sjö í Dölum og þrír í Ólafsvík. Í sóttkví eru…Lesa meira

true

Sóttu slasaðan mann á Langjökul

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru í gær kallaðar út á Langjökul. Ungur maður hafði slasast á fæti og komst ekki af sjálfsdáðum niður af jöklinum. Samferðafólk hans treysti sér ekki til að flytja hann um borð í bíl og aka til móts við sjúkrabíl. Fóru því sjúkraflutningamenn í fylgd björgunarsveita á jeppum upp á jökulinn. Þegar…Lesa meira