Búið um manninn til flutnings af jöklinum. Ljósmyndir: Landsbjörg.

Sóttu slasaðan mann á Langjökul

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Björgunarsveitir á Vesturlandi voru í gær kallaðar út á Langjökul. Ungur maður hafði slasast á fæti og komst ekki af sjálfsdáðum niður af jöklinum. Samferðafólk hans treysti sér ekki til að flytja hann um borð í bíl og aka til móts við sjúkrabíl. Fóru því sjúkraflutningamenn í fylgd björgunarsveita á jeppum upp á jökulinn. Þegar komið var á vettvang var búið um hinn slasaða, honum komið vel fyrir á sjúkrabörum og hann fluttur í björgunarsveitarbíl í sjúkrabíl í Húsafelli.\r\n\r\nÚtkallið barst um klukkan 13  en lauk þegar allir viðbragðsaðilar voru komnir í bækistöð skömmu fyrir kvöldmat. Vel gekk að flytja manninn en gæta þurfti þó fyllsta öryggis þar sem mikið er af sprungum á jöklinum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48642\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-48642 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Sottu-slasadan-mann-a-Langjokul_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Í Húsafelli beið sjúkrabifreið sem flutti manninn á sjúkrahús.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Sóttu slasaðan mann á Langjökul - Skessuhorn