{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Gert er ráð fyrir allar stofnanir á skóla- og frístundasviði Akraneskaupstaðar verði með starfsemi á morgun mánudag en þó er vitað að einhver skerðing mun verða á þeim stöðum þar sem starfsmenn eða börn eru í einangrun eða sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Þar segir jafnframt að kvöldstarf félagsmiðstöðvarinnar Arnadals muni verða lokað eitthvað áfram. Stjórnendur í stofnunum bæjarins munu í dag senda foreldrum upplýsingar um hvernig starfseminni verði háttað næstu daga með þeim fyrirvara þó að staðan breytist ekki frá því sem hún er í dag. Í dag fóru fram skimanir, meðal annars á börnum og starfsfólki Teigasels og nemendum í FVA. Nemendur í fjölbraut verða í fjarnámi á morgun og þriðjudag, en staðan verður endurmetin í hádeginu á þriðjudaginn samkvæmt tilkynningu frá skólameistara.",
"innerBlocks": []
}
Búist við að skólar verði opnir á morgun - Skessuhorn