Fréttir

true

Tæplega sex hundruð í sóttkví eða einangrun

Samkvæmt nýjustu tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi, sem birtar voru í gær, eru nú 469 í sóttkví á Vesturlandi vegna Covid-19 og 141 í einangrun með veiruna. Langflest smit eru á Akranesi þar sem 102 eru nú í einangrun og 416 í sóttkví. Á svæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi eru 23 í einangrun og 38…Lesa meira

true

Alexandrea Rán varð Norðurlandameistari

Alexandrea Rán Guðnýjardóttir úr Borgarnesi varð í gær Norðurlandameistari í lyftingum, þegar hún keppti í -63 kg flokki unglinga í klassískri bekkpressu. Lyfti hún 97,5 – 102,5 – 110 kg. Það er persónuleg bæting hennar um 12,5 kg og bæting á Íslandsmeti unglinga um 10 kg. Alexandrea hafði lengi haft í huga að slá gamalt…Lesa meira

true

Lagnir lagðar í Skógahverfi 3A á Akranesi

Þeir voru glaðbeittir á föstudegi, þeir Björn Sigfússon, Gunnar Jónsson og Jón Bjarni Gíslason hjá Eðallögnum ehf. þegar blaðamaður Skessuhorns rakst á þá í dag. Þeir vinna þessa dagana við að leggja lagnir í götur í nýjasta hverfi Akurnesinga, Skógahverfi 3A. Að sögn Jóns Bjarna er áætlað að verkinu ljúki öðru hvoru megin við áramótin.…Lesa meira

true

Örvunarbólusetning stendur landsmönnum til boða

Um 160.000 manns um land allt verða boðaðir í örvunarbólusetningu fyrir áramót. Á höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöllinni á tímabilinu 15. nóvember til 8. desember á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Örvunarskammtar eru ætlaðir þeim sem þegar eru bólusettir og fengu síðari bóluefnaskammtinn fyrir a.m.k. sex mánuðum. Fólk verður boðað með strikamerki sem send verða í…Lesa meira

true

Assa verður í Akraneshöfn í vetur

Fyrr í dag var Assa BA dregin með dráttarbáti frá Reykjavík og bundin við bryggju í Akraneshöfn. Assa BA hét áður Laugarnes og var olíuflutningaskip. Sjótækni á skipið í dag og er skráð heimahöfn þess á Tálknafirði. Þessi misserin er unnið að breytingum á skipinu til að það geti þjónað nýju hlutverki en Sjótækni sérhæfir…Lesa meira

true

Blikksmiðja Guðmundar býður upp á Skaga-Streymi

Hátíðinni Heima-Skaga sem vera átti um helgina hefur verið frestað til næsta árs vegna faraldursins. Þess í stað hafa þau Ólafur Páll og Hlédís brugðið á það ráð að halda Skaga-Streymi. Þau Óli og Hlédís birtu tilkynningu þess efnis á Facebook síðu Heima-Skaga. Í tilkynningunni segir meðal annars: „Öðruvísi tímar kalla á öðruvísi nálgun. Heima-Skaga…Lesa meira

true

Gæti snjóað um tíma suðvestantil á landinu

Seint í kvöld er spáð vaxandi austanátt sunnan heiða samhliða kólnandi veðri. Rigning eða slydda verður þó syðst á landinu. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna snjókomu eða slyddu á svæðinu við Faxaflóa, jafnvel snjókomu. Spáin gerir ráð fyrir austan og norðaustan átt 10-18 m/s á morgun, hvassast á annesjum norðvestan til, en 15-23…Lesa meira

true

Breytingar á leikmannahópi Skagamanna

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari Skagamanna í knattspyrnu, segir að nú séu lausir samningar við nokkra leikmenn ÍA. „Við erum að vinna í því að semja við þessa leikmenn sem við viljum halda. Arnar Már Guðjónsson hefur stigið til hliðar og Ólafur Valur Valdimarsson einnig. Dino Hodzic er farinn í Kára, Aron Kristófer Lárusson er genginn…Lesa meira

true

Stór hnullungur féll úr Akrafjalli

Í gærmorgun urðu bændur á Vestra-Reyni í Hvalfjarðarsveit varir við að stór grjóthnullungur hafði losnað úr stalli ofarlega í Akrafjalli og fallið niður á jafnsléttu. Slóð hans niður fjallið er vel sýnileg. „Landslag tekur breytingum. Fengum þennan hnullung úr efstu klettum snemma í morgun, það hefur verið ágætur hraði miðað við verksummerki. Hann var samt…Lesa meira

true

Sérstök skimun í fyrramálið fyrir starfsfólk stofnana Akraneskaupstaðar

Vegna lokunar stofnana á vegum Akraneskaupstaðar í dag, vegna víðtæks kóvidsmits í bæjarfélaginu, hefur verið ákveðið að á morgun, laugardaginn 6. nóvember milli klukkan 10-12, verður á Þjóðbraut 11 Akranesi, framkvæmd skimun fyrir starfsfólk leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og frístundastarfs hjá Akraneskaupstað. Markmið með þessari sérstöku skimun er að búa svo um hnútana að hægt verði…Lesa meira