
Gísli Laxdal Unnarsson í leik gegn Keflavík í sumar. Ljósm. ak
Breytingar á leikmannahópi Skagamanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari Skagamanna í knattspyrnu, segir að nú séu lausir samningar við nokkra leikmenn ÍA. „Við erum að vinna í því að semja við þessa leikmenn sem við viljum halda. Arnar Már Guðjónsson hefur stigið til hliðar og Ólafur Valur Valdimarsson einnig. Dino Hodzic er farinn í Kára, Aron Kristófer Lárusson er genginn til liðs við KR og Elias Tamburini verður ekki áfram. Við tókum þá ákvörðun að endurnýja ekki við þessa leikmenn. Við höfum samið til tveggja ára við Alex Davey og það er ekki í okkar höndum með Ísak Snæ Þorvaldsson. Við viljum hins vegar semja við Hall Flosason, Árna Snæ Ólafsson, Sindra Snæ Magnússon og Óttar Bjarna Guðmundsson og viðræður eru nú í gangi að reyna að semja við þessa leikmenn,“ segir Jóhannes Karl.",
"innerBlocks": []
}