Sérstök skimun í fyrramálið fyrir starfsfólk stofnana Akraneskaupstaðar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vegna lokunar stofnana á vegum Akraneskaupstaðar í dag, vegna víðtæks kóvidsmits í bæjarfélaginu, hefur verið ákveðið að á morgun, laugardaginn 6. nóvember milli klukkan 10-12, verður á Þjóðbraut 11 Akranesi, framkvæmd skimun <em><strong>fyrir starfsfólk leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og frístundastarfs hjá Akraneskaupstað.</strong></em> Markmið með þessari sérstöku skimun er að búa svo um hnútana að hægt verði að opna sem flestar stofnanir á mánudaginn a.m.k. fyrir börn þeirra foreldra sem tilheyra forgangshópum og þurfa að mæta til vinnu. Á sunnudag verður út frá niðurstöðu sýnatökunnar metið hversu víðtæk opnunin verður á mánudaginn þ.e. fyrir forgangshópa t.d. velferðarþjónustu, hjúkrunarheimili, annað heilbrigðisstarfsfólk eða víðtækari opnun fyrir alla.\r\n\r\n„Staðan hefur haft mikil áhrif á starfsemi stofnana okkar og gripið var til þess ráðs að loka leik- og grunnskólum, tónlistarskóla og frístundastarfi í dag 5. nóvember, bæði vegna mönnunarvanda og til að leita allra leiða til þess að draga úr fjölgun smita. Slíkar ráðstafanir hafa óhjákvæmilega mikil áhrif á starfsemi annarra stofnanna og inngrip í daglegt líf bæjarbúa. Til þess að mögulegt sé að hefja starfsemi að nýju með sem öruggustum hætti er mikilvægt að leitast við koma í veg fyrir að smit í starfsmannahópum,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.\r\n\r\nFyrrgreindir starfsmenn bæjarins eru boðaðir í fullt PCR próf og eiga þeir að mæta sem eru ekki með staðfest Covid smit, ekki í sóttkví samkvæmt ákvörðun rakningarteymis og ekki þeir sem þurfa að fara í sýnatöku vegna einkenna. Þeir sem eru í smitgát í þessum hópi mæta líka í þessa skimun þar sem hún gefur betri niðurstöðu en hraðpróf. Starfsmenn skrá sig með rafrænum skilríkjum á heilsuveru.is, merkja við „kvef“ og skrá sig í tíma kl. 10 og passa sig að skrá sig ekki í hraðpróf eða í sýnatöku vegna einkenna. „Vinsamlega látið yfirmenn ykkar vita þegar niðurstaða liggur fyrir sem verður unnið með á sunnudeginum,“ segir í tilkynningu til starfsmanna.\r\n\r\nSævar Freyr bæjarstjóri vill þakka stjórnendum og frábæra starfsfólki HVE fyrir að bregðast hratt við þessari beiðni: „Við viljum eftir fremsta megni geta opnað leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og frístundastarf svo starfsemi stofnana og fyrirtækja verði fyrir sem minnstri skerðingu. Vonandi gefa niðurstöður á sunnudag okkur tilefni til þess en það gæti komið til þess að við opnum fyrir forgangshópa.“",
  "innerBlocks": []
}
Sérstök skimun í fyrramálið fyrir starfsfólk stofnana Akraneskaupstaðar - Skessuhorn