Assa verður í Akraneshöfn í vetur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrr í dag var Assa BA dregin með dráttarbáti frá Reykjavík og bundin við bryggju í Akraneshöfn. Assa BA hét áður Laugarnes og var olíuflutningaskip. Sjótækni á skipið í dag og er skráð heimahöfn þess á Tálknafirði. Þessi misserin er unnið að breytingum á skipinu til að það geti þjónað nýju hlutverki en Sjótækni sérhæfir sig m.a. í ýmissi þjónustu til sjós, svo sem dýpktunarframkvæmdum, neðansjávarlögnum og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki. Að sögn Kjartans J Haukssonar framkvæmdastjóra Sjótækni er verkefnastaða fyrirtækisins góð og að jafnaði um fimm skip á floti í einu. Hann segir að ýmsar breytingar verði nú gerðar á skipinu og muni þær standa yfir fram eftir vetrinum. Á meðan verður Assa bundið við bryggju á Akranesi. Assa var smíðuð árið 1978 í Saxköbing í Danmörku, er 371 brúttótonn og 41,28 metri að lengd.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"48628,48629\"]",
  "innerBlocks": []
}
Assa verður í Akraneshöfn í vetur - Skessuhorn