{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hátíðinni Heima-Skaga sem vera átti um helgina hefur verið frestað til næsta árs vegna faraldursins. Þess í stað hafa þau Ólafur Páll og Hlédís brugðið á það ráð að halda Skaga-Streymi. Þau Óli og Hlédís birtu tilkynningu þess efnis á Facebook síðu Heima-Skaga. Í tilkynningunni segir meðal annars: „Öðruvísi tímar kalla á öðruvísi nálgun. Heima-Skaga hátíðin eins og hún átti að vera á laugardaginn frestast til næsta árs, en það er ekki þar með sagt að við getum ekki haft gaman á sama tíma - í sitt hvoru lagi. Það var grikkur um síðustu helgi, gerum gott úr þessari. Áfram og upp!\r\n\r\nÞað er Blikksmiðja Guðmundar, styrktaraðili hátíðarinnar og einn af þeim stöðum sem HEIMA-SKAGI átti að fara fram á, sem kemur sterk inn og býður öllum íbúum til tónleika heima í stofu á laugardagskvöld kl. 21:00 til c.a. 22:00. Það verða Andrea Gylfa og Eddi Lár og svo Bjartmar Guðlaugsson sem koma fram.\r\n\r\nNokkrar leiðir eru færar til þess að njóta Skaga-Streymis. Flest heimili eiga nú orðið snjallsjónvarp. Þeir sem eru með þannig sjónvarp geta einfaldlega opnað Youtube í sjónvarpinu og fundið viðburðinn þar á slóðinni hér fyrir neðan. Þá er einnig hægt að finna útsendinguna á Youtube í símanum og varpa henni upp á sjónvarpið. Svo er líka hægt að nota heimilistölvuna eða spjaldtölvuna til þess að horfa á tónleikana á Youtube. Youtube rás tónleikanna er þegar opin og ekki er verra að vera í fyrra fallinu og vera búinn að tengjast streyminu tímanlega því fátt er ergilegra en að standa í að tengjast í þann mund sem tónleikarnir eru að hefjast.\r\n\r\nMeð því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan er hægt að tengjast Heima-Streymi:\r\n\r\n<a href=\"https://www.youtube.com/watch?v=cQHD1hcDibY\">https://www.youtube.com/watch?v=cQHD1hcDibY </a>",
"innerBlocks": []
}
Blikksmiðja Guðmundar býður upp á Skaga-Streymi - Skessuhorn