{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Seint í kvöld er spáð vaxandi austanátt sunnan heiða samhliða kólnandi veðri. Rigning eða slydda verður þó syðst á landinu. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna snjókomu eða slyddu á svæðinu við Faxaflóa, jafnvel snjókomu. Spáin gerir ráð fyrir austan og norðaustan átt 10-18 m/s á morgun, hvassast á annesjum norðvestan til, en 15-23 við fjöll suðaustan til. Víða rigning eða slydda, snjókoma fyrir norðan og talsverð úrkoma suðvestanlands í fyrramálið. Norðlægari og dregur úr vindi og úrkomu seinnipartinn. Hiti 1 til 8 stig að deginum, mildast Suðaustanlands.",
"innerBlocks": []
}
Gæti snjóað um tíma suðvestantil á landinu - Skessuhorn