Fréttir

true

Upplýsingar frá viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Í gær voru 112 í einangrun í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi. Flestir þeirra eða 75 voru á Akranesi þar sem smitum og einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað hratt síðustu daga vegna hópsmits sem farið er að teygja anga sína inn í stofnunina. Viðbragðsstjórn HVE hefur fundað daglega síðustu daga. „Nokkrir starfsmenn eru í sóttkví og…Lesa meira

true

Nánar um nýjar reglur vegna sóttvarna

Skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða eins metra nálægðarreglu, fjöldatakmarkanir verða 500 manns, veitingastöðum með vínveitingaleyfi verður skylt að loka tveimur tímum fyrr en nú. Með notkun hraðprófa verður heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar aðgerðir samkvæmt tillögum sóttvarnalæknis sem hefur…Lesa meira

true

Grímuskylda, 500 manna samkomutakmarkanir og styttri opnun skemmtistaða

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að herða samkomutakmarkanir vegna Covid-19 þannig að 500 mega koma saman. Opnunartími skemmtistaða verður styttur um tvær klukkustundir þannig að nú verði síðasti maður að vera farinn út á miðnætti. Grímuskylda verður tekin upp að nýju þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir deildar meiningar…Lesa meira

true

Árgangamóti ÍA frestað

Árgangamóti ÍA sem átti að fara fram laugardaginn 20. nóvember næstkomandi hefur verið frestað vegna óviðráðanlegra orsaka. Þetta er annað árið í röð sem mótinu er frestað en því var frestað í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Næsta árgangamót er áætlað laugardaginn 12. nóvember á næsta ári.Lesa meira

true

Víðtæk lokun á Akranesi í dag

Það eru ekki eingöngu skólar, frístunda- og íþróttastarf sem liggur niðri á Akranesi í dag vegna Covid-19 smita í samfélaginu. Einhver þjónustufyrirtæki eru sömuleiðis lokuð, svo sem Fjöliðjan og Búkolla auk þess sem takmörkuð opnun er á bæjarskrifstofunum. Árrisulir sætabrauðsdrengir komu nú rétt í þessu að lokuðum dyrum í Kallabakaríi og þá verður matsala Gamla…Lesa meira

true

Hraðhleðslustöð rís í Stykkishólmi

Framkvæmdir standa nú yfir á bílaplani við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi en þar mun rísa rafhleðslustöð fyrir bíla. Frá þessu segir á vef Stykkishólmsbæjar en Stykkishólmsbær hefur samið við Ísorku um að reisa 150 kílóvatta hraðhleðslustöð á umræddu svæði. Bæjarstjóra var falið af bæjarráði að vinna að því að hraða uppbyggingu hraðhleðsluinnviða í Stykkishólmi og stuðla…Lesa meira

true

Björgunarsveitarfólk byrjað að selja Neyðarkallinn

Dagana 4. til 7. nóvember standa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir fjáröflunarátakinu „Neyðarkall björgunarsveitanna.“ Átakið á sér orðið langa sögu, hófst 2006 og er þetta því í 16. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall. Í ár er um að ræða sjóbjörgunarmann sem er klár í útkall á sjó,…Lesa meira

true

Nýtt íþróttahús rís brátt á Jaðarsbökkum

Um þessar mundir eru að hefjast framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum á Akranesi en það verður stærsta framkvæmd Akraneskaupstaðar um árabil. Um er að ræða fjölnota íþróttahús og er það einn áfangi af mörgum í áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæðinu. Húsið samanstendur af fjölnota íþróttasal og hliðarbyggingu á tveimur hæðum fyrir ýmis fylgirými. Íþróttasalurinn…Lesa meira

true

Fjarnám er byggðamál segir rektor Háskólans á Bifröst

Við Háskólann á Bifröst er í dag eingöngu kennt í fjarnámi með stuttum staðarlotum á sex vikna fresti. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor við skólann segir það stefnu skólans að mæta menntaþörf landsmanna hverju sinni og að köllun sé eftir auknu fjarnámi. „Fyrst þegar Háskólinn á Bifröst var stofnaður vantaði menntamöguleika á landsbyggðinni og var stofnun…Lesa meira

true

Enn er varað við kræklingsáti

Matvælastofnun varar áfram við tínslu og neyslu á kræklingi úr Hvalfirði þar sem DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum þegar sýni voru tekin 22. október sl. DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu en líða hjá á nokkrum dögum.Lesa meira