{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Framkvæmdir standa nú yfir á bílaplani við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi en þar mun rísa rafhleðslustöð fyrir bíla. Frá þessu segir á vef Stykkishólmsbæjar en Stykkishólmsbær hefur samið við Ísorku um að reisa 150 kílóvatta hraðhleðslustöð á umræddu svæði. Bæjarstjóra var falið af bæjarráði að vinna að því að hraða uppbyggingu hraðhleðsluinnviða í Stykkishólmi og stuðla að því að 150 kílóvatta stöð yrði sett upp í bænum.\r\n\r\nÁ fundi skipulags- og byggingarnefndar voru lagðar fram tillögur að staðsetningum á rafhleðslustöðvum fyrir bíla í landi bæjarins og taldi nefndin staðsetningu á bílaplani við Íþróttamiðstöð Stykkishólms fremsta kost. Unnið er nú að uppsetningu í samræmi við tillögur nefndarinnar. Stöðin verður þannig staðsett að hægt er að aka að henni beggja vegna og hlaða tvo bíla í einu. Gert er ráð fyrir að tveimur stöðvum verði bætt við í nánustu framtíð.",
"innerBlocks": []
}