Upplýsingar frá viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gær voru 112 í einangrun í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi. Flestir þeirra eða 75 voru á Akranesi þar sem smitum og einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað hratt síðustu daga vegna hópsmits sem farið er að teygja anga sína inn í stofnunina. Viðbragðsstjórn HVE hefur fundað daglega síðustu daga. „Nokkrir starfsmenn eru í sóttkví og hefur þurft að kalla út aðra í þeirra stað. Fjarvera starfsmanna hefur þó ekki leitt til skerðingar á þjónustu enn sem komið er. Á HVE á Akranesi hefur verið gripið til þeirra ráðstafana að loka fyrir heimsóknir nema í undantekningartilvikum og hafa innganga læsta. Þeir sem eiga bókaðan tíma eða eiga brýnt erindi þurfa að hringja dyrasíma við innganginn,“ segir í tilkynningu frá HVE.",
"innerBlocks": []
}
Upplýsingar frá viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands - Skessuhorn