Grímuskylda, 500 manna samkomutakmarkanir og styttri opnun skemmtistaða
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að herða samkomutakmarkanir vegna Covid-19 þannig að 500 mega koma saman. Opnunartími skemmtistaða verður styttur um tvær klukkustundir þannig að nú verði síðasti maður að vera farinn út á miðnætti. Grímuskylda verður tekin upp að nýju þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir deildar meiningar hafa verið innan ríkisstjórnarinnar um hertar aðgerðir á fundi hennar í morgun. Grímuskyldan tekur gildi strax en breytingar á hámarksfjölda á samkomum og styttri opnunartíma skemmtistaða ekki fyrr en á miðvikudag í næstu viku. Horfið hefur verið frá afléttingu takmarkanna 18. nóvember.\r\n\r\nFjöldi greindra smita hefur stóraukist síðustu daga. 167 voru greindir í gær og voru flestir þeirra utan sóttkvíar. Daginn áður voru 147 greindir. Því telja heilbrigðisyfirvöld óhjákvæmilegt annað en að grípa til hertra aðgerða.\r\n\r\n<em>Nánar í annarri frétt eftir nokkrar mínútur.</em>",
"innerBlocks": []
}
Grímuskylda, 500 manna samkomutakmarkanir og styttri opnun skemmtistaða - Skessuhorn