Víðtæk lokun á Akranesi í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það eru ekki eingöngu skólar, frístunda- og íþróttastarf sem liggur niðri á Akranesi í dag vegna Covid-19 smita í samfélaginu. Einhver þjónustufyrirtæki eru sömuleiðis lokuð, svo sem Fjöliðjan og Búkolla auk þess sem takmörkuð opnun er á bæjarskrifstofunum. Árrisulir sætabrauðsdrengir komu nú rétt í þessu að lokuðum dyrum í Kallabakaríi og þá verður matsala Gamla kaupfélagsins lokuð fram í næstu viku. Þá hefur Vesturlandsslag ÍA og Skallagríms í körfuknattleik sem  átti að fara fram í kvöld á Akranesi verið frestað. Vafalítið er þetta ekki tæmandi upptalning.\r\n\r\nEkki er búið að birta nýjar tölur um fjölda smitaðra úr sýnatöku í gær, en samkvæmt heimildum Skessuhorns er það töluverður hópur. Í fyrradag greindust 50 með smit á Akranesi. Alls voru 75 í einangrun þá og 109 í sóttkví. Nýjar tölur eru væntanlegar frá lögreglu á næstu tímum.",
  "innerBlocks": []
}
Víðtæk lokun á Akranesi í dag - Skessuhorn