
Guðni forseti hífður frá borði og áleiðis í þyrluna. Ljósm. Landsbjörg.
Björgunarsveitarfólk byrjað að selja Neyðarkallinn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagana 4. til 7. nóvember standa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir fjáröflunarátakinu „Neyðarkall björgunarsveitanna.“ Átakið á sér orðið langa sögu, hófst 2006 og er þetta því í 16. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall. Í ár er um að ræða sjóbjörgunarmann sem er klár í útkall á sjó, þá líklega á einu af 13 björgunarskipum sem staðsett eru hringinn í kringum landið, hugsuð til að tryggja öryggi sjófarenda og sinna útköllum á hafsvæðinu við Ísland. Félagið hefur í einni og annarri mynd rekið björgunarskip allt frá því á árinu 1928 þegar Slysavarnafélag Íslands er stofnað. Sjóbjörgun er stór þáttur í starfsemi margra björgunarsveita og má segja að bróðurpartur sveitanna 93 sinni sjóbjörgun á einhvern máta en til viðbótar við björgunarskipin er björgunarsveitafólk þjálfað til að nota fjölbreyttan búnaði, slöngubáta, harðbotnabáta og sæþotur.\r\n\r\nUm 150 útköll eru á ári hverju í sjóbjörgun eða rúmlega tvö í viku að meðaltali. Útköllin eru býsna fjölbreytt; allt frá aðstoð við vélarvana sjóför í lífbjarganir á sjó. Samstarf björgunarsveita sín á milli, samstarf við sjómenn og Landhelgisgæslu Íslands er afar gott og eru mjög reglulega æfingar þar sem þessir aðilar æfa björgun á sjó.\r\n\r\n<strong>Forsetahjónin tóku þátt í sjóbjörgunaræfingu</strong>\r\n\r\n<img class=\" wp-image-48601 alignleft\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Bjorgunarsveitarfolk-byrjad-solu-a-Neydarkallinum_2-600x308.jpg\" alt=\"\" width=\"217\" height=\"111\" />Í gær hófst fjáröflunarátakið formlega þegar forsetahjónin hr. Guðni Th Jóhannesson og Eliza Jean Reid tóku þátt í sjóbjörgunaræfingu rétt fyrir utan Reykjavíkurhöfn. Forsetinn var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar úr björgunarskipinu Ásgrími S Björnssyni og Eliza stýrði björgunarskipinu aftur til hafnar eftir að hafa sótt Guðna Th. Þau stóðu sig feiknavel og virtust ánægð með að fá svona góða innsýn í starf björgunarsveita og annarra viðbragðsaðila.\r\n\r\nNú treysta björgunarsveitirnar á fólkið í landinu, björgunarsveitafólk mun standa vaktina á fjölförnum stöðum þessa daga og selja Neyðarkall. Hagnaður af sölunni rennur beint til björgunarsveita og verður hann notaður til að efla búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins. „Við vonum að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}