
Frá skimunarstað á Akranesi, en þar hefur oft verið margt um manninn síðustu daga.
Tæplega sex hundruð í sóttkví eða einangrun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt nýjustu tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi, sem birtar voru í gær, eru nú 469 í sóttkví á Vesturlandi vegna Covid-19 og 141 í einangrun með veiruna. Langflest smit eru á Akranesi þar sem 102 eru nú í einangrun og 416 í sóttkví. Á svæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi eru 23 í einangrun og 38 í sóttkví; fjórir í einangrun í Ólafsvík og fimm í sóttkví; 12 í einangrun í Dölum og átta í sóttkví og loks eru tveir í sóttkví í Stykkishólmi.\r\n\r\nVegna stöðunnar var ákveðið að skima í gærmorgun starfsfólk skóla og frístundastarfs á Akranesi. Í dag er síðan stór skimunardagur einnig. Þá munu m.a. nemendur fjölbrautaskólans mæta í skimun sem og allir nemendur og starfsfólk leikskólans Teigasels. Upplýsingar úr þessum skimunum helgarinnar munu leiða í ljós hversu marga skóla og aðrar stofnanir verður hægt að opna í fyrramálið, mánudag. Einnig verða nokkrir aðrir vinnustaðir lokaðir eftir helgi þar sem starfsfólk er ýmist í sóttkví eða einangrun. Einnig er ljóst að nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands verða í fjarnámi á mánudag og þriðjudag hið minnsta samkvæmt tilkynningu sem skólinn sendi frá sér í morgun.\r\n\r\nRétt er að ítreka við alla sem búsettir eru á svæðum þar sem Covid-19 er nú grasserandi að fara að öllu með gat og gæta að persónubundnum smitvörnum; spritta vel og þá er grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð.",
"innerBlocks": []
}