Fréttir

true

Laun opinberra starfsmanna hækka meira en á almennum markaði

Laun hjá ríki og sveitarfélögum hafa hækkað meira en á almennum vinnumarkaði frá því að núverandi kjarasamningslota hófst í febrúar 2024. Mest hefur hækkunin verið hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur, eða 20,1%, samanborið við 18,4% á almennum markaði. Þetta kemur fram í nýrri haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar. Grunntímakaup á vinnumarkaðinum í heild hækkaði um 18,7% á tímabilinu. Samkvæmt…Lesa meira

true

Framlengja greiðsludreifingu vegna íbúðalóða

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að framlengja heimild til greiðsludreifingar byggingarréttar- og gatnagerðargjalda vegna lóða í Skógahverfi 3C. Með því vill sveitarfélagið auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að fjárfesta í byggingarlóðum í hverfinu. Samkvæmt ákvörðuninni greiðast 25% gjaldanna innan mánaðar frá úthlutun lóðar og önnur 25% við útgáfu byggingarleyfis, þó eigi síðar en ári eftir úthlutun. Eftirstöðvarnar…Lesa meira

true

Lækkun heimsmarkaðsverðs hefur ekki enn skilað sér

Alþýðusamband Íslands fylgist með eldsneytisverði hér á landi. Í nýlegri könnun kemur fram að heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað frá því um miðjan september, en innlent bensínverð án opinberra gjalda hefur enn ekki fylgt þeirri lækkun. „Frá ársbyrjun hefur meðaltal lægsta bensínverðs hjá íslenskum smásölum hækkað um tæp 35%. Bensínverð án opinberra gjalda hefur á…Lesa meira

true

Dalabyggð stefnir á rekstrarafgang og lækkun skulda

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027–2030 gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu öll árin og lækkandi skuldum, þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum undanfarin ár. Áætlunin var tekin til fyrri umræðu í sveitarstjórn í síðustu viku. Rekstur sveitarfélagsins hefur verið undir þrýstingi vegna verðbólgu, hárra vaxta og aukins fjármagnskostnaðar, ekki síst í kjölfar byggingar nýrrar íþróttamiðstöðvar sem…Lesa meira

true

Skora á Apple að innleiða íslensku

Rúmlega þrjú þúsund manns hafa þegar skrifað undir áskorun til tæknirisans Apple um að innleiða íslensku í tæki sín. Átakið Tryggjum íslensku hófst á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, að frumkvæði Almannaróms og Íslandsstofu með stuðningi stjórnvalda. Markmiðið er að tryggja að íslenskir notendur geti nýtt sér raddstýringu, talgervla og aðrar aðgengislausnir sem þegar eru…Lesa meira

true

NASA-sérfræðingar, jólasveinar og aðventustemning í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Fjölbreytt jóla- og aðventudagskrá verður í Snæfellsjökulsþjóðgarði á næstu vikum þar sem boðið verður upp á fræðslu, útivist og notalegar fjölskyldustundir. Meðal þess sem vekur athygli er heimsókn fjögurra sérfræðinga bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA dagana 22.–25. nóvember. Ragnhildur Sigurðardóttir segir markmiðið að laða heimamenn jafnt sem ferðafólk í þjóðgarðinn og minna á þau fjölmörgu tækifæri til…Lesa meira

true

Lionsmenn bjóða ljósakrossa í kirkjugarðinn

Að venju verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum nú í byrjun aðventunnar. Afgreiðslutímar að þessu sinni verða laugardaginn 28. nóvember frá klukkan 11 til 15.30, sunnudaginn 29. nóvember frá kl. 13 til 15.30 og laugardaginn 5. desember frá kl. 13 til 15.30. Verðið fyrir krossinn er 9.500 krónur sem er…Lesa meira

true

Áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu barna til umræðu á heilbrigðisþingi

Áhrif samfélagsmiðla og skjánotkunar á líðan, hegðun og þroska barna og ungmenna verða meðal helstu umfjöllunarefna á heilbrigðisþingi sem haldið verður fimmtudaginn 26. nóvember á Hótel Hilton við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Þingið ber yfirskriftina Það þarf þorp… og verður sjónum beint að geðheilsu ungu kynslóðarinnar, áskorunum nútímans og leiðum til úrbóta. Meðal fyrirlesara er Skúli…Lesa meira

true

Selur húfuuppskriftir til styrktar Krabbameinsfélaginu

Birna Guðrún Konráðsdóttir á Hvanneyri glímir nú í þriðja sinn við krabbamein. Í síðustu lyfjameðferð missti hún hárið og ákvað að gera sér viðeigandi höfuðfat sem hún gæti borið við ýmis tilefni. Húfurnar nefnir hún „Hlíf – húfa fyrir líf.“ Uppskriftir að húfunum selur hún nú á netinu og rennur ágóði af sölunni til Krabbameinsfélags…Lesa meira

true

Hlutu viðurkenningar á uppskeruhátíð Borgfirðings

Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt uppskeruhátíð sína 7. nóvember síðastliðinn. Þar var þeim keppendum sem bestum árangri náðu á árinu veitt viðurkenning. Íþróttamanneskja Borgfirðings árið 2026 var kjörin Kristín Eir Holaker Hauksdóttir á Skáney. Í barnaflokki hlaut Kristján Fjeldsted viðurkenningu, í unglingaflokki Kristín Eir, í ungmennaflokki Raluca Schwark, í flokki áhugamana Arna Hrönn Ámundadóttir og í flokki…Lesa meira