
Skora á Apple að innleiða íslensku
Rúmlega þrjú þúsund manns hafa þegar skrifað undir áskorun til tæknirisans Apple um að innleiða íslensku í tæki sín. Átakið Tryggjum íslensku hófst á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, að frumkvæði Almannaróms og Íslandsstofu með stuðningi stjórnvalda. Markmiðið er að tryggja að íslenskir notendur geti nýtt sér raddstýringu, talgervla og aðrar aðgengislausnir sem þegar eru í boði á fjölmörgum öðrum tungumálum.
Skortur á íslenskri máltækni hefur veruleg áhrif á daglegt líf margra, ekki síst fatlaðs fólks og þeirra sem glíma við tjáskipta- eða lestrarörðugleika. Í notendadæmum sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur safnað kemur meðal annars fram að tveggja barna móðir getur ekki svarað tölvupósti frá frístundaheimili barns síns með innbyggðum aðgengislausnum í Apple-síma sínum. Tæknin er til staðar en skilur ekki íslensku. Konan segir að innleiðing tungumálsins myndi breyta ótrúlega miklu fyrir sig og fjölskylduna.
Svipaðar hindranir mæta skólabörnum sem þurfa á tæknilegum stuðningi að halda, meðal annars vegna lestrarörðugleika, skertrar sjónar eða tjáskiptavanda. Þá getur skortur á íslenskum talgervli haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk sem reiðir sig á tjáskiptaforrit.
„Ef sérlausn fyrir íslenska rödd í tjáskiptaforriti hættir að virka við uppfærslu stýrikerfis getur einstaklingur misst rödd sína dögum eða vikum saman á meðan beðið er eftir lagfæringu frá forritara. Innbyggð íslensk kerfisrödd myndi draga úr þörfinni fyrir slíkar sérlausnir og þar með úr því óöryggi sem þeim fylgir,“ segir í einu notendadæmanna. Fyrir þá sem hafa áhuga á að skrifa undir áskorunina er hægt að gera það á tryggjumislensku.is