Skógarhverfi 3C á Akranesi. Ljósm. Akraneskaupstaður.

Framlengja greiðsludreifingu vegna íbúðalóða

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að framlengja heimild til greiðsludreifingar byggingarréttar- og gatnagerðargjalda vegna lóða í Skógahverfi 3C. Með því vill sveitarfélagið auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að fjárfesta í byggingarlóðum í hverfinu. Samkvæmt ákvörðuninni greiðast 25% gjaldanna innan mánaðar frá úthlutun lóðar og önnur 25% við útgáfu byggingarleyfis, þó eigi síðar en ári eftir úthlutun. Eftirstöðvarnar greiðast tveimur árum eftir úthlutun. Fyrirkomulagið gildir um lóðir sem úthlutað er frá 1. nóvember 2026 til ársloka 2027.