
NASA-sérfræðingar, jólasveinar og aðventustemning í Snæfellsjökulsþjóðgarði
Fjölbreytt jóla- og aðventudagskrá verður í Snæfellsjökulsþjóðgarði á næstu vikum þar sem boðið verður upp á fræðslu, útivist og notalegar fjölskyldustundir. Meðal þess sem vekur athygli er heimsókn fjögurra sérfræðinga bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA dagana 22.–25. nóvember. Ragnhildur Sigurðardóttir segir markmiðið að laða heimamenn jafnt sem ferðafólk í þjóðgarðinn og minna á þau fjölmörgu tækifæri til útivistar og upplifunar sem þar er að finna. „Við viljum svo gjarnan fá heimamenn til okkar og höfum lagt okkur fram um að bjóða upp á eitthvað fyrir alla. Hér er frábær aðstaða, öflugt starfsfólk og ótal möguleikar til að njóta náttúrunnar,“ segir Ragnhildur í samtali við Skessuhorn.
NASA-sérfræðingar opna heim himingeimsins
Fyrsti viðburður jóladagskrárinnar verður sunnudaginn 22. nóvember þegar fjórir sérfræðingar NASA heimsækja þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi. Þar verður dagskrá frá klukkan 10 til 16 með fræðslu, kennslu og kynningu á stjörnuskoðunarbúnaði. Þriðjudagskvöldið 24. nóvember verður síðan boðið upp á stjörnuskoðun á þaki þjóðgarðsmiðstöðvarinnar frá klukkan 18 til 20.
Aðdraganda heimsóknarinnar má rekja til samstarfs sem hófst í tengslum við sólmyrkvann í sumar. Með styrk frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hefur þjóðgarðurinn fjárfest í stjörnuskoðunarbúnaði í samstarfi við innlenda og erlenda sérfræðinga. „Þetta eru fjórar konur sem allar gegna stjórnunarstöðum hjá NASA og eru með doktorsgráðu á sviði geimvísinda. Þær hafa hreinlega orðið ástfangnar af Snæfellsnesi og hafa verið okkur ómetanlegar við uppbyggingu verkefnisins,“ segir Ragnhildur.
Þjóðgarðurinn hefur meðal annars eignast þrjá öfluga stjörnusjónauka og búnað til að skoða sólina, Júpíter og norðurljósin. Þegar aðstæður leyfa verður búnaðurinn settur upp á þaki þjóðgarðsmiðstöðvarinnar og gestum boðið að skoða undur himingeimsins.
Draumurinn að kveikja áhuga framtíðarvísindamanna
Ragnhildur segir sérstaka áherslu lagða á fræðslu barna og ungmenna. NASA-sérfræðingarnir munu ásamt starfsfólki þjóðgarðsins heimsækja alla skóla á Snæfellsnesi með fræðsludagskrá og stjörnuskoðunarbúnað. Einnig er fyrirhugað sérsniðið fjarnámskeið frá NASA fyrir skólana. „Draumurinn er að sjö ára strákur eða níu ára stelpa komi hingað, horfi í gegnum sjónaukann og hugsi með sér: Heyrðu, ég ætla að verða geimfari! Það væri stórkostlegt ef okkur tækist að kveikja slíkan áhuga.“ Búnaðurinn verður staðsettur í þjóðgarðinum en er færanlegur og því mögulegt að nýta hann við fræðslu víðar. Ragnhildur sér fyrir sér að verkefnið geti með tímanum náð til alls Vesturlands.
Almenningi gefst einnig kostur á að hitta NASA-sérfræðingana í þjóðgarðsmiðstöðinni sunnudaginn 22. nóvember. Þar verður fjölbreytt dagskrá um himingeiminn með viðburðum á klukkutímafresti. Þriðjudagskvöldið 24. nóvember, klukkan 18–20, verður síðan sérstakt tækifæri til að hitta sérfræðingana og kynna sér búnaðinn. Hún telur einnig að stjörnuskoðun og aukin fræðsla um norðurljós geti skapað ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu utan háannatíma. „Við viljum fá ferðamenn á veturna og viljum að þeir dvelji lengur og njót þess sem er í boði. Ísland er frábær staður til að skoða norðurljósin og þarna eru tækifæri sem við getum nýtt miklu betur.“
Börnin skreyta jólatréð
Jólastemningin tekur síðan við dagana 25.–27. nóvember þegar elstu leikskólabörnin og yngstu nemendur grunnskóla Snæfellsbæjar skreyta jólatré í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Um er að ræða samstarfsverkefni skólanna og þjóðgarðsins þar sem árlega er valið sérstakt þema. Að þessu sinni er það tröll. Jólatréð kemur frá Skógrækt Eyrarsveitar og verður dansað og sungið í kringum það. Þá má búast við að jólasveinar láti sjá sig.
Sunnudaginn 6. desember verður aðventustund í gestastofunni á Malarrifi frá klukkan 14 til 15. Þar verður ratleikur, kveikt upp í eldstæðinu og heitt kakó á könnunni. Gestir eru hvattir til að gefa sér góðan tíma, skoða sýninguna í gestastofunni og umhverfið á Malarrifi. Laugardaginn 13. desember verður barnastund í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi frá klukkan 15:30 til 16:30. Barnakór Snæfellsbæjar syngur jólalög og hægt verður að búa til jólaföndur úr endurnýjanlegum efniviði. Þá verður gestum og gangandi boðið upp á mandarínur og smákökur.
Sólstöðuganga á Djúpalónssandi
Síðasti auglýsti viðburður jóladagskrárinnar verður mánudaginn 21. desember þegar landverðir leiða fræðslugöngu um Djúpalónssand með áherslu á gamlar sólstöðuhátíðarhefðir. Gangan hefst við bílastæðið klukkan 14 og lýkur ofan við Dritvík um klukkan 15:30. Ragnhildur segir svæðið bjóða upp á einstaka upplifun þar sem náttúra, saga og gamlar þjóðsögur fléttist saman. Meðal annars verður völundarhúsið við Dritvík skoðað. „Þetta er algjört töfrasvæði,“ segir hún og hvetur fólk til að nýta tækifærið til útivistar á þessum árstíma.
Vilja líka fá heimamenn í heimsókn
Snæfellsjökulsþjóðgarður fagnar 25 ára afmæli sínu á árinu og að sögn Ragnhildar heimsækir um hálf milljón gesta þjóðgarðinn árlega. Hún segir samstarf við nærsamfélagið alltaf hafa verið gott en nú sé horft í auknum mæli til alls Snæfellsness og Vesturlands. „Með því að Snæfellsnes er orðið UNESCO-vistvangur hafa skapast ný tækifæri til samstarfs sveitarfélaganna fjögurra og þjóðgarðsins. Við viljum byggja enn frekar á því á næstu árum.“
Gestastofan á Malarrifi er opin alla daga frá klukkan 11 til 16 og þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi frá klukkan 10 til 16:30 virka daga og til klukkan 17 um helgar. Lokað verður á aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag en að öðru leyti verður opið yfir hátíðirnar.
Ragnhildur bendir á að þjóðgarðurinn sé opinn allt árið og þar séu fjölmargar gönguleiðir, áhugaverðir áfangastaðir og góð aðstaða fyrir fjölskyldur. Hún vonast til að jóladagskráin verði hvatning fyrir íbúa Vesturlands til að koma og njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. „Við viljum að fólk taki þátt og komi með hugmyndir að nýjum viðburðum. Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt. Gefum okkur tíma, verum saman og förum út þegar hægt er.. Lítum okkur nær og njótum þess sem við höfum í kringum okkur,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir að lokum.