Tankað á bíl blaðamanns. Hjá ÓB á Akranesi kostar dísellítrinn í dag 331,70 krónur en ÓB í Borgarnesi 311,20 kr. Verðmunurinn nemur 6,6%. Ljósm. óhk

Lækkun heimsmarkaðsverðs hefur ekki enn skilað sér

Alþýðusamband Íslands fylgist með eldsneytisverði hér á landi. Í nýlegri könnun kemur fram að heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað frá því um miðjan september, en innlent bensínverð án opinberra gjalda hefur enn ekki fylgt þeirri lækkun. „Frá ársbyrjun hefur meðaltal lægsta bensínverðs hjá íslenskum smásölum hækkað um tæp 35%. Bensínverð án opinberra gjalda hefur á sama tíma hækkað um 40%. Til samanburðar hefur staðverð í New York-höfn, sem hér er mælikvarði á heimsmarkaðsverð, hækkað um 20% í íslenskum krónum.“