Höfundurinn skartar hér einni húfunni, en uppskriftirnar er að finna á textasmidja.is

Selur húfuuppskriftir til styrktar Krabbameinsfélaginu

Birna Guðrún Konráðsdóttir á Hvanneyri glímir nú í þriðja sinn við krabbamein. Í síðustu lyfjameðferð missti hún hárið og ákvað að gera sér viðeigandi höfuðfat sem hún gæti borið við ýmis tilefni. Húfurnar nefnir hún „Hlíf - húfa fyrir líf.“ Uppskriftir að húfunum selur hún nú á netinu og rennur ágóði af sölunni til Krabbameinsfélags Borgarfjarðar en félagið hefur stutt dyggilega við bakið á henni í veikindunum.

„Þegar ég greindist með krabbamein í þriðja sinn, og missti hárið, langaði mig ekki að vera með einhverja kerlingarhúfu; túrban, hárkollu eða klút. Þetta stafaði náttúrulega einkum af því að þótt ég sé orðin 68 ára gömul þá geng ég að sjálfsögðu ekki með „kerlingarhúfur,“ einfaldlega af því að mér finnt það púkalegt. Það gera bara kerlingar sem eru í eldri en ég. Og þar sem ég fann ekkert höfuðfat sem mér líkaði, þurfti ég búa mér til slíkt, af því að það var vetur og mér kalt á skallanum. Þar með fór ég að gramsa, bæði í hausnum á mér, á netinu og prjónabókum. En upp úr öllu þessu kom loks húfa sem ég gat sætt mig við. Húfa sem enginn tengdi við krabbamein, því margir verða svo vandræðalegir þegar kona mætir sköllótt eða með svona „krabbatúrban“ í veisluna, búðina eða á heilsugæsluna, annars hefði ég líklega bara gengið um með bónaðan skallann,“ segir Birna.

„Ég prjónaði nokkrar útgáfur af húfum en þær er ég búin að gefa vegna þess að ég er komin með hár og einnig vegna þess að ég hef eiginlega aldrei gengið mikið með húfur. Samt hélt ég einni eftir, svona að gamni. Svo datt mér í hug að kannski væri gaman að koma þessari uppskrift á blað og bjóða til sölu til styrktar Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar. Félagið hefur stutt við bakið á mér alla mína krabbagöngu, svo mig langaði að þakka fyrir mig, á táknrænan hátt. Þá var nauðsynlegt að setja nafn á krógann. Ég prófaði alls konar nöfn en engin þeirra heilluðu mig. Og sem stundum fyrr þá leitaði ég í vandræðum mínu til góðrar vinkonu, Þórdísar Sigurbjörnsdóttur frá Hrísum, og saman suðum við upp þetta nafn; Hlíf - húfa fyrir líf.“

Birna segist ánægð með nafnið og uppskrifin er þegar komin í sölu á síðunni www.textasmidja.is Á síðunni geta áhugasamir jafnframt keypt bækur sem Birna hefur skrifað. „Það eru nokkrar tillögur að útfærslum í uppskriftinni, svona eins og mér og þeim sem fengu húfu hjá mér, datt í hug að gæti verið töff. Svo hefur prjónafólk héðan og þaðan lesið yfir og lagt blessun sína yfir og þá er bara að vona að uppskriftin seljist eins og heitar lummur á góðum réttardegi, Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar til vegsauka,“ segir Birna.

Litríkar og glaðlegar húfur; Hlíf – húfa fyrir líf