
Laun opinberra starfsmanna hækka meira en á almennum markaði
Laun hjá ríki og sveitarfélögum hafa hækkað meira en á almennum vinnumarkaði frá því að núverandi kjarasamningslota hófst í febrúar 2024. Mest hefur hækkunin verið hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur, eða 20,1%, samanborið við 18,4% á almennum markaði. Þetta kemur fram í nýrri haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar. Grunntímakaup á vinnumarkaðinum í heild hækkaði um 18,7% á tímabilinu.