
Lionsmenn bjóða ljósakrossa í kirkjugarðinn
Að venju verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum nú í byrjun aðventunnar. Afgreiðslutímar að þessu sinni verða laugardaginn 28. nóvember frá klukkan 11 til 15.30, sunnudaginn 29. nóvember frá kl. 13 til 15.30 og laugardaginn 5. desember frá kl. 13 til 15.30. Verðið fyrir krossinn er 9.500 krónur sem er hækkun um 500 krónur miðað við síðustu tvö ár.
Hægt er að hafa samband við Ólaf Grétar Ólafsson í síma 844-2362, eða á netfangið oligretar@aknet.is, eða Magnús Ólaf Kristjánsson í síma 844-9306 eða á netfangið magnusok@gmail.com. Þeir sem panta kross með þessu móti geta greitt kr. 9.500 inn á reikning 0186-26-017754 kt: 530586-1469. Nú þegar er byrjað að taka við pöntunum í gegnum tölvupóst og síma. Gott er að þeir sem panta tilgreini nafn og dánardag þess sem krossinn á að fara hjá, eða leiðisnúmerið í garðinum.
„Stuðningur ykkar hefur verið okkur dýrmætur í gegnum tíðina og gert okkur kleift að styrkja góð málefni. Á síðasta starfsári styrktum við Heilbriðgisstofnun Vesturlands á Akranesi um 6,9 milljón króna til tækjakaupa, Hollvinasamtök HVE um 300.000 krónur, rúm á Dvalarheimilið Höfða fyrir 1.120.000 krónur, vatnsvél í anddyri Höfða fyrir 53.000 kr., Mæðrastyrksnefnd Akraness um kr. 350.000 og Alþjóðahjálparsjóð Lions um 310.000 kr. Það má því segja að stuðningur Akurensinga og velunnara klúbbsins skili sér víða um heiminn. Um leið og við Lionsmenn þökkum kærlega fyrir frábæran stuðning undanfarin ár vonumst við til þess að sá stuðningur haldi áfram,“ segir í tilkynningu.