Dalabyggð stefnir á rekstrarafgang og lækkun skulda

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027–2030 gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu öll árin og lækkandi skuldum, þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum undanfarin ár. Áætlunin var tekin til fyrri umræðu í sveitarstjórn í síðustu viku. Rekstur sveitarfélagsins hefur verið undir þrýstingi vegna verðbólgu, hárra vaxta og aukins fjármagnskostnaðar, ekki síst í kjölfar byggingar nýrrar íþróttamiðstöðvar sem kostaði um 1,5 milljarð króna. Framkvæmdin er sú stærsta í 30 ára sögu Dalabyggðar og var að stórum hluta fjármögnuð með lántökum. Milliuppgjör í ágúst sýndi töluverðan rekstrarhalla en með auknu aðhaldi, endurskoðun útgjalda og hærri framlögum úr Jöfnunarsjóði er nú gert ráð fyrir lítilsháttar rekstrarafgangi á árinu 2026.