Fréttir

true

Ráðherra stefnir að stórtæku eignarnámi lands til að flýta raforkuinnviðum

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að umfangsmiklu frumvarpi sem miðar að því að flýta uppbyggingu raforkuinnviða, hraða úrlausn ágreiningsmála og auka skilvirkni í leyfisveitingum. „Veigamestu ákvæðin lúta að eignarnámi og aðgangi að landi, umhverfismati framkvæmda, tengikostnaði nýrra virkjana, aflviðmiði rammaáætlunar og eftirfylgni með fjárfestingum í flutningskerfi raforku,“ segir í kynningu.…Lesa meira

true

Frostrigning getur framkallað flughálku á vegum

Líkur eru á frostrigningu og þar með flughálku á köflum um suðvestanvert landið síðdegis og í kvöld, þá einkum í uppsveitum sunnanlands. „Það gengur í vestan- og síðar norðan stórhríð á norðvestanverðu landinu seinni partinn á morgun. Búast má við að færð spillist á fjallvegum, til dæmis á Öxnadalsheiði, Vatnsskarði og Steingrímsfjarðarheiði, eftir kl. 16,…Lesa meira

true

Uppselt á tíu sýningar Frelsis í Grundaskóla

Söngleikurinn Frelsi, sem nemendur 10. bekkjar Grundaskóla á Akranesi sýna um þessar mundir, hefur fengið frábærar viðtökur. Uppselt hefur verið á allar tíu sýningarnar til þessa og hefur því verið ákveðið að bæta við tveimur sýningum, 18. og 19. nóvember. Sú síðari verður jafnframt lokasýning verksins. Frelsi var fyrsti söngleikurinn sem settur var upp í…Lesa meira

true

Styrkja verslun í heimabyggð

Akraneskaupstaður hyggst, líkt og undanfarin ár, færa starfsfólki sínu gjafabréf í jólagjöf sem nýta má hjá verslunar- og þjónustufyrirtækjum á Akranesi. Með þessu vill kaupstaðurinn bæði gleðja starfsfólk sitt og styðja við atvinnulíf og verslun í heimabyggð. Um miðjan desember munu tæplega 900 starfsmenn kaupstaðarins fá gjafabréf að verðmæti 10.000 krónur hvert. Heildarverðmæti gjafabréfanna nemur…Lesa meira

true

Keppt í ringó og boccia á Hvammstanga

Sunnudaginn 25. október var háð keppni í ringói í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Eftir fjölmarga leiki þar sem vel var tekið á því urðu úrslit að í fyrsta sæti varð USVH-2, í öðru sæti varð UMSB og í þriðja USVH-1. Alls mættu sjö lið til keppni, þ.e. Glóðin Kópavogi, UMSB Borgarbyggð, FEBAK á Akureyri tvö lið,…Lesa meira

true

Þóra sagnaþula er listamaður mánaðarins

Listfélag Akraness velur í hverjum mánuði Listamann mánaðarins til að koma fram eða sýna verk í Kallabakaríi. Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sagnaþula er listamaður nóvembermánaðar. Hún kom fram í bakaríinu síðastliðinn laugardag og ræddi þar við gesti. Í sýningarskrá kemur fram: „Flestir hafa gaman af að hlusta á góðar sögur. Í öllum býr sagnamaður sem hefur…Lesa meira

true

Vandasamt að færa heila bók yfir á leiksvið

„Maður getur tekið manninn úr Borgarfirði en ekki Borgarfjörðinn úr manninum“ Borgfirðingurinn Fjölnir Gíslason leikari hefur komið víða við á listferli sínum, bæði á sviði og bak við tjöldin. Nú vinnur hann að uppsetningu heimildaleikverksins „Útkall – Síðasta flug Leifs Eiríkssonar,“ sem byggir á frásögnum af mannskæðu flugslysi á Srí Lanka árið 1978. Verkið verður…Lesa meira

true

Íbúar landsins eru nú 412.526

Samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár eru 412.526 einstaklingar skráðir til búsetu á Íslandi. Þar af eru 213.270 karlar, 199.013 konur og 243 einstaklingar skráðir með aðra kynskráningu. Íslenskir ríkisborgarar eru 330.022 en erlendir ríkisborgarar 82.504, eða rétt um 20% íbúanna. Meðalaldur landsmanna er 38,8 ár og elsti skráði íbúinn er 106 ára. Jón er algengasta eiginnafn…Lesa meira

true

Pólverjar í Grundarfirði fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum

Pólverjar fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum í gær, 11. nóvember, en 108 ár eru liðin frá því Pólland endurheimti sjálfstæði sitt árið 1918. Dagurinn hefur sérstaka þýðingu í Grundarfirði þar sem fjölmennt pólskt samfélag hefur fest rætur og er mikilvægur hluti af mannlífi bæjarins. Alls eru 158 íbúar með pólskt ríkisfang skráðir með lögheimili í Grundarfirði. Pólverjar…Lesa meira

true

Góðhjartaður harðjaxl gleymdist í Botnsskála

„Mig langaði að saga Óla Þórðar yrði sögð“ segir höfundurinn Hjörtur Júlíus Skagamaðurinn Hjörtur J. Hjartarson hefur sent frá sér sína fyrstu bók; Harðjaxlinn ljúfi, þar sem hann rekur ævi og feril knattspyrnukappans og þjálfarans Ólafs Þórðarsonar. Bókin hefur fengið afar góðar viðtökur og er þegar komin á metsölulista. Hjörtur segir að verkefnið hafi fyrst…Lesa meira