Uppselt á tíu sýningar Frelsis í Grundaskóla

Söngleikurinn Frelsi, sem nemendur 10. bekkjar Grundaskóla á Akranesi sýna um þessar mundir, hefur fengið frábærar viðtökur. Uppselt hefur verið á allar tíu sýningarnar til þessa og hefur því verið ákveðið að bæta við tveimur sýningum, 18. og 19. nóvember. Sú síðari verður jafnframt lokasýning verksins.

Frelsi var fyrsti söngleikurinn sem settur var upp í Grundaskóla árið 2003 og snýr nú aftur í nýjum búningi, rúmum tveimur áratugum síðar. Verkið, sem fjallar um vináttu, samskipti og mikilvægi þess að fá að vera maður sjálfur, hefur verið aðlagað stærri nemendahópi og nútímatækni. Nýjum persónum hefur verið bætt við ásamt þremur nýjum lögum.

Höfundar söngleiksins eru Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson, kennarar við skólann. Upphaflega sýningin naut mikilla vinsælda og hana sáu um 2.500 manns. Í kjölfarið varð til sú hefð að setja upp söngleik í skólanum á þriggja ára fresti.

Leikstjórn er í höndum Margrétar Sögu Gunnarsdóttur og Ylfu Flosadóttur, sem jafnframt hafa umsjón með söng ásamt Flosa Einarssyni. Fjölmennur hópur kennara, starfsfólks og foreldra kemur að uppsetningunni, en nemendur 10. bekkjar bera hitann og þungann af sýningunni.