Þóra sagði sögur sl. laugardag í Kallabakaríi. Ljósm. hóo

Þóra sagnaþula er listamaður mánaðarins

Listfélag Akraness velur í hverjum mánuði Listamann mánaðarins til að koma fram eða sýna verk í Kallabakaríi. Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sagnaþula er listamaður nóvembermánaðar. Hún kom fram í bakaríinu síðastliðinn laugardag og ræddi þar við gesti.