
Pólski fáninn var dreginn að húni í tilefni dagsins. Ljósm. Grundarfjarðarbær.
Pólverjar í Grundarfirði fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum
Pólverjar fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum í gær, 11. nóvember, en 108 ár eru liðin frá því Pólland endurheimti sjálfstæði sitt árið 1918. Dagurinn hefur sérstaka þýðingu í Grundarfirði þar sem fjölmennt pólskt samfélag hefur fest rætur og er mikilvægur hluti af mannlífi bæjarins. Alls eru 158 íbúar með pólskt ríkisfang skráðir með lögheimili í Grundarfirði. Pólverjar setja þannig svip sinn á bæjarlífið og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Af þessu tilefni sendir Grundarfjarðarbær pólskum íbúum sínum hlýjar hamingjuóskir með daginn.