
Styrkja verslun í heimabyggð
Akraneskaupstaður hyggst, líkt og undanfarin ár, færa starfsfólki sínu gjafabréf í jólagjöf sem nýta má hjá verslunar- og þjónustufyrirtækjum á Akranesi. Með þessu vill kaupstaðurinn bæði gleðja starfsfólk sitt og styðja við atvinnulíf og verslun í heimabyggð.