
Frostrigning getur framkallað flughálku á vegum
Líkur eru á frostrigningu og þar með flughálku á köflum um suðvestanvert landið síðdegis og í kvöld, þá einkum í uppsveitum sunnanlands. „Það gengur í vestan- og síðar norðan stórhríð á norðvestanverðu landinu seinni partinn á morgun. Búast má við að færð spillist á fjallvegum, til dæmis á Öxnadalsheiði, Vatnsskarði og Steingrímsfjarðarheiði, eftir kl. 16, og stuttu síðar má einnig búast við ófærð á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Vatnaleið. Hríðin færist svo til austurs þegar líður á kvöldið og nóttina,“ segir í tilkynningu veðurfræðings Vegagerðarinnar.