Unnið við lagningu háspennulínu. Ljósm. Landsnet

Ráðherra stefnir að stórtæku eignarnámi lands til að flýta raforkuinnviðum

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að umfangsmiklu frumvarpi sem miðar að því að flýta uppbyggingu raforkuinnviða, hraða úrlausn ágreiningsmála og auka skilvirkni í leyfisveitingum. „Veigamestu ákvæðin lúta að eignarnámi og aðgangi að landi, umhverfismati framkvæmda, tengikostnaði nýrra virkjana, aflviðmiði rammaáætlunar og eftirfylgni með fjárfestingum í flutningskerfi raforku,“ segir í kynningu. Frumvarpið, verði það samþykkt, mun flýta því að hægt verði að leggja nýjar raflínur milli landshluta. Málið er umdeilt í ljósi þess að dregið verði úr möguleikum bænda og annarra landeigenda til að mótmæla lagningu rafstrengja. Ráðuneytið stefnir nú að eignarnámi lands og flýtimeðferð slíkra mála.