Fréttir

true

Kynna fjárhagsáætlun og þjónustustefnu

Tveir opnir kynningarfundir um fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027–2030 og þjónustustefnu sveitarfélagsins verða haldnir þriðjudaginn 17. nóvember í Auðarstofu að Miðbraut 11 í Búðardal. Fyrri fundurinn hefst klukkan 17 og sá síðari klukkan 20. Sama dagskrá verður á báðum fundum. Á fundunum verður farið yfir fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og fyrirhugaða þjónustu við íbúa, meðal annars í…Lesa meira

true

Velta í álframleiðslu jókst um 41% milli ára

Velta í málmframleiðslu jókst verulega í júlí og ágúst síðastliðnum og nam rúmum 76 milljörðum króna, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Það er um 41% aukning frá sömu mánuðum í fyrra þegar veltan var tæpir 54 milljarðar króna. Hærra heimsmarkaðsverð á áli skýrir stóran hluta aukningarinnar, en útflutt magn var einnig örlítið meira en á…Lesa meira

true

Fjölga á lögreglumönnum og efla löggæslu í landinu

Fjölgun lögreglumanna, öflugri barátta gegn skipulagðri brotastarfsemi og aukin áhersla á sýnilega löggæslu í nærumhverfi fólks eru meðal helstu markmiða nýrrar löggæsluáætlunar fyrir árin 2027–2031. Áætlunin, sem ber heitið „Traust lögregla – Öruggt samfélag,“ var kynnt á morgunverðarfundi Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í Reykjavík í morgun. Með áætluninni er brugðist við breyttu öryggisumhverfi og sífellt…Lesa meira

true

Héraðssýningar á Vesturlandi – Hvítársíða

Ég gaf loforð bændum í Síðunni upp á Sámsstöðum á sýningunni þar sunnudaginn 18. október, sem var á messutíma, að tala ekki illa um þá í Skessuhorni. Presturinn hafði ekki boðað messu þann daginn og því sjálfsagt að nota tímann til annarra heilagra verka. Sýningin eins og áður í rúmgóðum og skemmtilegum fjárhúsum þar sem…Lesa meira

true

Spenna og gleði á Haustfagnaði í Dölum

Það var gestkvæmt sem áður í Dölunum um liðna helgi þegar vetur gekk í garð en þá hélt Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) sinn árlega Haustfagnað. Dagskráin var fjölbreytt en með hefðbundnu sniði þar sem bændur sýndu árangur sinn í ræktun á lambhrútasýningum, Íslandsmeistaramótið í rúningi fór fram í reiðhöllinni í Búðardal þar sem einnig…Lesa meira

true

Vindmylluáform á Narfabakka bíða endanlegrar afgreiðslu

Áform um uppsetningu allt að sex vindmylla á jörðinni Narfabakka í Hvalfjarðarsveit eru komin skrefi nær framkvæmd. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins samþykkti á fundi sínum 15. október breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar, en endanleg afgreiðsla er í höndum sveitarstjórnar. Vindmyllurnar verða 10–15 metra háar og er gert ráð fyrir allt að 90 kW samanlögðu…Lesa meira

true

Hljómur og Gleðigjafar koma fram saman

Tveir kórar eldri borgara munu koma saman til söngs þriðjudaginn 3. nóvember kl.17 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Það eru kórarnir Gleðigjafar úr Borgarbyggð og Hljómur, kór FEBAN. Kórarnir munu syngja nokkur lög hver kór og syngja svo saman tvö lög í lok tónleikanna. Stjórnendur kóranna eru þau Hólmfríður Friðjónsdóttir og Lárus Sighvatsson. Miðar…Lesa meira

true

Heitavatnslaust í hluta Hvalfjarðarsveitar

Heitavatnslaust er nú á svæðinu frá Saurbæ að Tungu og í hluta Svínadals, samkvæmt tilkynningu frá Hitaveitufélagi Hvalfjarðarsveitar. Gert er ráð fyrir að heitavatnslaust verði til klukkan 16 í dag, miðvikudaginn 28. október. Hitaveitufélagið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda íbúum á svæðinu.Lesa meira

true

Áform um nýjan duftreit í Görðum

Áform eru um að útbúa duftreit fyrir allt að 150 duftker í Kirkjugarði Akraness í Görðum. Óskað hefur verið eftir fjárhagslegri þátttöku Akraneskaupstaðar í framkvæmdinni, en áætlaður kostnaður er 1,5–2 milljónir króna. Málið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 19. október síðastliðinn. Fyrirhugað er að stalla hallandi svæði innan kirkjugarðsins til að…Lesa meira

true

Söngleikurinn Frelsi frumsýndur á föstudagskvöldið

„Þá er loksins komið að þessu! Eftir margar vikur af æfingum, söng, dansi, hlátri og stressi er söngleikurinn Frelsi tilbúinn til sýningar,“ segir í tilkynningu frá Grundaskóla á Akranesi. Frumsýnt verður næstkomandi föstudag og þétt sýningarplan tekur við í kjölfarið. „Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með nemendum í 10. bekk, árgangi 2011, taka…Lesa meira