
Dómsmálaráðherra flutti ávarp í upphafi fundar þar sem ný löggæsluáætlun var kynnt. Ljósm. Stjórnarráðið
Fjölga á lögreglumönnum og efla löggæslu í landinu
Fjölgun lögreglumanna, öflugri barátta gegn skipulagðri brotastarfsemi og aukin áhersla á sýnilega löggæslu í nærumhverfi fólks eru meðal helstu markmiða nýrrar löggæsluáætlunar fyrir árin 2027–2031. Áætlunin, sem ber heitið „Traust lögregla – Öruggt samfélag,“ var kynnt á morgunverðarfundi Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í Reykjavík í morgun.