
Söngleikurinn Frelsi frumsýndur á föstudagskvöldið
„Þá er loksins komið að þessu! Eftir margar vikur af æfingum, söng, dansi, hlátri og stressi er söngleikurinn Frelsi tilbúinn til sýningar,“ segir í tilkynningu frá Grundaskóla á Akranesi. Frumsýnt verður næstkomandi föstudag og þétt sýningarplan tekur við í kjölfarið. „Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með nemendum í 10. bekk, árgangi 2011, taka við þessu skemmtilega verkefni og gera það að sínu.“
Frelsi var fyrsti söngleikurinn sem settur var upp í skólanum árið 2003 og nú, rúmum tuttugu árum síðar, fær verkið nýtt líf í höndum nýrrar kynslóðar nemenda. Höfundar verksins eru Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson sem hafa unnið að því að endurgera söngleikinn fyrir helmingi stærri nemendahóp. Söngleikurinn Frelsi fjallar um hóp unglinga og lífið innan veggja skólans. Þar koma við sögu ástir, vinátta, samskipti og baráttan við að finna sinn stað og tilheyra. Inn í hversdagsleikann fléttast húmor, tónlist, dans og ýmislegt óvænt, en undir öllu fjörinu leynast líka mikilvæg skilaboð um einelti, sjálfsmynd og hvernig við komum fram hvert við annað.
„Í grunninn fjallar Frelsi um eitthvað sem skiptir okkur öll máli, réttinn til að vera við sjálf. Að fá að tilheyra án þess að þurfa að breyta sér til að falla inn í hópinn. Njótið þess að upplifa Frelsi með okkur,“ segir í tilkynningu.


