Kynna fjárhagsáætlun og þjónustustefnu

Tveir opnir kynningarfundir um fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027–2030 og þjónustustefnu sveitarfélagsins verða haldnir þriðjudaginn 17. nóvember í Auðarstofu að Miðbraut 11 í Búðardal. Fyrri fundurinn hefst klukkan 17 og sá síðari klukkan 20. Sama dagskrá verður á báðum fundum. Á fundunum verður farið yfir fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og fyrirhugaða þjónustu við íbúa, meðal annars í dreifbýli. Fundirnir eru liður í samráði við íbúa áður en málin verða tekin til síðari umræðu í sveitarstjórn. Íbúar eru hvattir til að mæta, kynna sér áformin og koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum. Gildandi þjónustustefnu Dalabyggðar má finna á hlekk inni á vefsíðu sveitarfélgsins: Þjónustustefna Dalabyggðar 2022 – 2026.