
Ál.
Velta í álframleiðslu jókst um 41% milli ára
Velta í málmframleiðslu jókst verulega í júlí og ágúst síðastliðnum og nam rúmum 76 milljörðum króna, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Það er um 41% aukning frá sömu mánuðum í fyrra þegar veltan var tæpir 54 milljarðar króna. Hærra heimsmarkaðsverð á áli skýrir stóran hluta aukningarinnar, en útflutt magn var einnig örlítið meira en á sama tíma í fyrra. Gengi krónunnar breyttist hins vegar lítið á tímabilinu.