Auk lambhrútasýninganna var gefinn kostur á að sýna skrautlegustu gimbrar ársins en það var forystugimbrin Tign frá Sauðafelli sem var tilnefnd sem sigurvegari þeirrar sýningar. Hér má sjá gimbrar frá Stórholti og Magnússkógum 3. Ljósmyndir: Steinþór Logi Arnarsson

Spenna og gleði á Haustfagnaði í Dölum

Það var gestkvæmt sem áður í Dölunum um liðna helgi þegar vetur gekk í garð en þá hélt Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) sinn árlega Haustfagnað. Dagskráin var fjölbreytt en með hefðbundnu sniði þar sem bændur sýndu árangur sinn í ræktun á lambhrútasýningum, Íslandsmeistaramótið í rúningi fór fram í reiðhöllinni í Búðardal þar sem einnig var matar- og handverksmarkaður. Hátíðinni var svo sem áður lokað með sviðaveislu og dansleik að Laugum í Sælingsdal.