
Lárus G Birgisson ráðunautur að dómsstörfum, en fjær glittir í greinarhöfund. Ljósm. Þuríður Guðmundsdóttir
Héraðssýningar á Vesturlandi – Hvítársíða
Ég gaf loforð bændum í Síðunni upp á Sámsstöðum á sýningunni þar sunnudaginn 18. október, sem var á messutíma, að tala ekki illa um þá í Skessuhorni. Presturinn hafði ekki boðað messu þann daginn og því sjálfsagt að nota tímann til annarra heilagra verka. Sýningin eins og áður í rúmgóðum og skemmtilegum fjárhúsum þar sem lítið fór fyrir mörgu fólki á öllum aldri sem enginn taldi og 38 lambhrútum og 25 veturgömlum. Að sýningu lokinni var öllum boðið til veglegrar veislu í eldhúsinu á Sámsstöðum, sem seint verður fullþökkuð. Sumir voru þá klyfjaðir gullskálum vegna úrvalshrúta sinna.