
Vindmylla. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Vindmylluáform á Narfabakka bíða endanlegrar afgreiðslu
Áform um uppsetningu allt að sex vindmylla á jörðinni Narfabakka í Hvalfjarðarsveit eru komin skrefi nær framkvæmd. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins samþykkti á fundi sínum 15. október breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar, en endanleg afgreiðsla er í höndum sveitarstjórnar. Vindmyllurnar verða 10–15 metra háar og er gert ráð fyrir allt að 90 kW samanlögðu afli. Raforkan verður nýtt til eigin nota á jörðinni. Skipulagsbreytingin felur meðal annars í sér að sérstök lóð verður afmörkuð fyrir vindmyllurnar og aðkoma að henni tryggð. Við staðsetningu þeirra verður tekið tillit til öryggis, hljóðvistar og áhrifa á nærumhverfið.