
Hljómur og Gleðigjafar koma fram saman
Tveir kórar eldri borgara munu koma saman til söngs þriðjudaginn 3. nóvember kl.17 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Það eru kórarnir Gleðigjafar úr Borgarbyggð og Hljómur, kór FEBAN. Kórarnir munu syngja nokkur lög hver kór og syngja svo saman tvö lög í lok tónleikanna. Stjórnendur kóranna eru þau Hólmfríður Friðjónsdóttir og Lárus Sighvatsson. Miðar verða seldir við innganginn og er miðaverð aðeins kr. 1.000.
-fréttatilkynning