Fréttir

true

Íbúum boðið í morgunkaffi með bæjarfulltrúum og bæjarstjóra

Íbúum í Grundarfirði gefst tækifæri til að hitta bæjarfulltrúa og bæjarstjóra í óformlegu spjalli yfir kaffibolla í Sögumiðstöðinni laugardaginn 17. október kl. 10.30–12.30. Um er að ræða mánaðarlegt morgunkaffi þar sem íbúar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri, borið upp spurningar og rætt þau málefni sem þeim liggja á hjarta. „Engin formleg dagskrá verður á…Lesa meira

true

Héraðssýningar á lambhrútum á Vesturlandi haustið 2026

Fyrsti þáttur – Borgarfjörður sunnan Skarðsheiðar Áfram skal haldið með að segja aðeins af sýningahaldi lambhrúta á héraðssýningum á Vesturlandi. Hef sett smávegis á blað um þær undanfarin haust. Fyrsta samsýningin haustið 2026 á Vesturlandi var fyrir Suður-Borgarfjörð. Héraðssýningin fyrir Suður-Borgarfjörð var haldin í mikilli reiðhöll á Akranesi þar sem öll sýningaaðstaða var eins og…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun fyrir Breiðafjörð á morgun

Á morgun, laugardag, hvessir af sunnan- og suðaustan, fyrst vestanlands með hlýindum og rigningu. Varað er við miklum sviptivindum á norðanverðu Snæfellsnesi frá hádegi og fram á kvöld. Þar er appelsínugul viðvörun í gildi frá klukkan 16-20 með vindhraða allt að 40–45 m/s þegar verst lætur. Við þær aðstæður er hættulegt að vera á ferðinni…Lesa meira

true

Tekist á um Holtavörðuheiðarlínu í byggðarráði

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gærmorgun lagði Haukur Þór Hauksson fulltrúi Miðflokksins fram tillögu varðandi væntanlega Holtavörðuheiðarlínu 2 um sveitarfélagið. Tillaga Hauks var svohljóðandi: „Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir yfir eindreginni andstöðu sinni við að Holtavörðuheiðarlína verði lögð yfir byggðir Borgarfjarðar. Byggðarráð leggur til að línuleiðin liggi ofan byggðar í Borgarfirði. Ljóst er að ef sveitarfélagið tekur…Lesa meira

true

Ljósleiðari fór í sundur

Ljósleiðaraslit var um klukkan 10 í morgun á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga í Hvalfjarðarsveit. Í tilkynningu frá Mílu kemur fram bilunin hafi áhrif á farsímasamband á svæðum í Svínadal, Lambhaga og á Grundartanga, auk nettenginga í nágrenni við Lambhaga. Búið er að staðsetja bilunina rétt austan við hringtorgið inn á Akranes. Framkvæmdasvið Mílu…Lesa meira

true

Hækka að hámarki gjöld um 2,5%

Sveitarstjórn Dalabyggðar ákvað á fundi sínum 15. október sl. að hækkanir á almennum gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027 verði að hámarki 2,5%. Við ákvörðunina var horft til þeirrar efnahagslegu stöðu sem heimili og fyrirtæki búa við um þessar mundir, auk þess sem lögð var áhersla á að tryggja áfram traustan rekstur sveitarfélagsins og góða þjónustu…Lesa meira

true

Félagsstarf eldri borgara í kirkjunni og Vinaminni

Á miðvikudögum er blómlegt félagsstarf eldri borgara í Vinaminni og í Akraneskirkju. Séra Ólöf Margrét Snorradóttir heldur utan um starfið. Síðastliðinn miðvikudag var bænastund í kirkjunni með tónlist kl. 12:10 en að því búnu var opið hús í Vinaminni þar sem gestir gæddu sér á súpu. Að þessu sinni sungu Ólafur Magnússon, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir…Lesa meira

true

Felldu tillögu um sérstaka hagræðingarnefnd

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær lagði fulltrúi Miðflokksins fram tillögu um stofnun sérstakrar nefndar sem fengi það hlutverk að rýna og hagræða í rekstri sveitarfélagsins. Tillagan var lögð fram í ljósi þess að sveitarstjórn samþykkti 7. október síðastliðinn að auka þurfi aðhald í rekstri á síðari hluta ársins. Fimm mánaða uppgjör sveitarsjóðs hafði sýnt…Lesa meira

true

Setbergssókn fær rausnarlegar gjafir

Sóknarnefnd Setbergssóknar í Grundarfirði fékk góðan gest á fund nefndarinnar á dögunum. Þar var mætt Matthildur S. Guðmundsdóttir til að færa sókninni afar veglega gjöf, tvær milljónir króna, fyrir sína hönd og barna sinna. Gjöfina má nýta til að brúa bil í rekstri, eða annað sem sóknarnefndin telur þurfa. Áður höfðu Matthildur og fjölskylda gefið…Lesa meira

true

Hver mínúta skiptir máli – fólk er hvatt til að skrá öll hjartastuðtæki

Í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins í dag, 16. október, eru eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja hvattir til að skrá tækin sín í nýja kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að auðvelda almenningi og Neyðarlínunni að finna hjartastuðtæki þegar hjartastopp verður en hver mínúta getur skipt sköpum. Heilbrigðisráðuneytið, í samstarfi við fjölda aðila, stendur fyrir skráningu hjartastuðtækja á landsvísu. Með…Lesa meira