
Íbúum boðið í morgunkaffi með bæjarfulltrúum og bæjarstjóra
Íbúum í Grundarfirði gefst tækifæri til að hitta bæjarfulltrúa og bæjarstjóra í óformlegu spjalli yfir kaffibolla í Sögumiðstöðinni laugardaginn 17. október kl. 10.30–12.30. Um er að ræða mánaðarlegt morgunkaffi þar sem íbúar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri, borið upp spurningar og rætt þau málefni sem þeim liggja á hjarta.