Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.

Felldu tillögu um sérstaka hagræðingarnefnd

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær lagði fulltrúi Miðflokksins fram tillögu um stofnun sérstakrar nefndar sem fengi það hlutverk að rýna og hagræða í rekstri sveitarfélagsins. Tillagan var lögð fram í ljósi þess að sveitarstjórn samþykkti 7. október síðastliðinn að auka þurfi aðhald í rekstri á síðari hluta ársins. Fimm mánaða uppgjör sveitarsjóðs hafði sýnt 231 milljónar króna neikvætt frávik frá fjárhagsáætlun A hluta. „Áréttar sveitarstjórn kröfu um aukið rekstraraðhald, stífa eftirfylgni með útgjöldum og ábyrga skuldastýringu á síðari hluta ársins,“ sagði í bókun sveitartjórnar á fundinum. Í tillögu Miðflokksins nú segir meðal annars: