
Tekist á um Holtavörðuheiðarlínu í byggðarráði
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gærmorgun lagði Haukur Þór Hauksson fulltrúi Miðflokksins fram tillögu varðandi væntanlega Holtavörðuheiðarlínu 2 um sveitarfélagið. Tillaga Hauks var svohljóðandi: „Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir yfir eindreginni andstöðu sinni við að Holtavörðuheiðarlína verði lögð yfir byggðir Borgarfjarðar. Byggðarráð leggur til að línuleiðin liggi ofan byggðar í Borgarfirði. Ljóst er að ef sveitarfélagið tekur ekki strax fast á málinu er í uppsiglingu eitthvert umfangsmesta eignarnám Íslandssögunnar. Byggðarráð ítrekar að hérað okkar byggir á landbúnaði, náttúrufegurð, laxveiði og sífellt metnaðarfyllri ferðaþjónustu sem á allt sitt undir hreinni ímynd héraðsins og sjónrænni upplifun. Að leggja Holtavörðuheiðarlínu, þetta ofvaxna mannvirki, yfir byggðir þar sem búseta, landbúnaður og ferðaþjónusta eiga að geta blómstrað í framtíðinni er tímaskekkja sem þarf að leiðrétta strax. Þar að auki stafar sjaldgæfum fuglum, svo sem örnum, og öðrum fuglategundum sem halda sig mikið á svæðinu hætta af línunni. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur auk þess lýst því yfir að vindorkuver, sem línunni var meðal annars ætlað að þjóna, muni ekki rísa, að minnsta kosti ekki án heimildar viðkomandi sveitarfélaga. Forsendur fyrir þessari línuleið eru því algerlega brostnar. Byggðarráð leggur áherslu á að fulltrúi Borgarbyggðar í raflínunefnd hafi þessa afstöðu byggðarráðs að leiðarljósi í störfum sínum í nefndinni.“