
Appelsínugul viðvörun fyrir Breiðafjörð á morgun
Á morgun, laugardag, hvessir af sunnan- og suðaustan, fyrst vestanlands með hlýindum og rigningu. Varað er við miklum sviptivindum á norðanverðu Snæfellsnesi frá hádegi og fram á kvöld. Þar er appelsínugul viðvörun í gildi frá klukkan 16-20 með vindhraða allt að 40–45 m/s þegar verst lætur. Við þær aðstæður er hættulegt að vera á ferðinni og lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.