Hilmar Örn og söngfólkið; Jón Magnús, Hanna Þóra og Ólafur. Ljósmyndir: HÓO

Félagsstarf eldri borgara í kirkjunni og Vinaminni

Á miðvikudögum er blómlegt félagsstarf eldri borgara í Vinaminni og í Akraneskirkju. Séra Ólöf Margrét Snorradóttir heldur utan um starfið. Síðastliðinn miðvikudag var bænastund í kirkjunni með tónlist kl. 12:10 en að því búnu var opið hús í Vinaminni þar sem gestir gæddu sér á súpu. Að þessu sinni sungu Ólafur Magnússon, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Jón Magnús Jónsson við undirleik Hilmars Arnar Agnarssonar organista.