
F.v. Sr. Karen Hjartardóttir sóknarprestur, Matthildur S. Guðmundsdóttir og Sigurborg Kr Hannesdóttir formaður sóknarnefndar. Ljósm. tfk
Setbergssókn fær rausnarlegar gjafir
Sóknarnefnd Setbergssóknar í Grundarfirði fékk góðan gest á fund nefndarinnar á dögunum. Þar var mætt Matthildur S. Guðmundsdóttir til að færa sókninni afar veglega gjöf, tvær milljónir króna, fyrir sína hönd og barna sinna. Gjöfina má nýta til að brúa bil í rekstri, eða annað sem sóknarnefndin telur þurfa. Áður höfðu Matthildur og fjölskylda gefið ríflega 1,2 milljónir króna í þaksjóð kirkjunnar. Þá barst einnig styrkur frá Soffaníasi Cecilssyni hf. að upphæð tvær milljónir á dögunum. Sá styrkur verður einnig nýttur í rekstur sóknarinnar.