Fréttir

true

Flóðgátt tónlistarinnar opnaðist á ný

„Mér fannst alltaf eins og eitthvað vantaði“ Halla Jónsdóttir er fædd og uppalin á Akranesi. Hún bjó fyrst við Vallholt og síðar lengi við Esjubraut, gekk í Brekkubæjarskóla og stundaði jafnframt nám við Tónlistarskólann á Akranesi. Tónlistin var því snemma stór hluti af lífi hennar. „Ég var eitt af þessum börnum sem var alltaf syngjandi.…Lesa meira

true

Endurnýjað starfsleyfi til slátrunar í Brákarey

Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi hefur fengið endurnýjað starfsleyfi til næstu tveggja ára frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. „Starfsleyfið er mikilvægt því það opnar á áframhaldandi þróun fyrirtækisins. Við höfum í hyggju að vinna með fleiri bændum og fá inn fleiri hluthafa. Óvissa um framtíðina var á síðasta kjörtímabili lamandi fyrir alla þróun starfsemi okkar,“ segir…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á morgun í Hvalfjarðarsveit

Heitavatnslaust verður á öllu þjónustusvæði Hitaveitufélags Hvalfjarðar á morgun, fimmtudaginn 15. október, frá klukkan 12 til 16, vegna viðgerða og viðhaldsvinnu á vegum Rarik og hitaveitufélagsins. Í tilkynningu frá Hitaveitufélagi Hvalfjarðar kemur fram að þótt stefnt sé að því að hleypa heitu vatni aftur á kerfið klukkan 16 megi búast við að fullur þrýstingur verði…Lesa meira

true

Háskólinn á Akureyri opnar fyrir nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf

Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að setja á laggirnar nýtt þriggja ára bakkalárnám í Áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Hjúkrunarfræðideild skólans. Námið verður 180 ECTS-einingar og verður það fyrsta sinnar tegundar hér á landi, en hingað til hefur Símenntun HA verið með umfangsmikil námskeið á þessu sviði. Með námsleiðinni er brugðist við brýnni þörf fyrir…Lesa meira

true

Farið fé – bók um endalok Sparisjóðs Mýrasýslu

Árið 2028 verða tuttugu ár liðin frá því Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) í Borgarnesi fór í þrot. Endalok sjóðsins urðu héraðsbúum, viðskiptavinum og öðrum velunnurum reiðarslag, en sparisjóðurinn hafði sem slíkur verið öflugur og í raun samofinn sögu héraðsins í tæpa öld. Hann hafði stutt eins og klettur við starfsemi einstaklinga, fyrirtækja og félaga, enda kallaður…Lesa meira

true

Strætóferðir felldar niður

Strætóleið 82/58 er ekki ekið á milli Hellissands, Stykkishólms og Borgarness í dag. Þá er heldur ekki ekið leið 51 sem fer á milli Reykjavíkur og Selfoss og ekki heldur leið 50 sem ekur á milli Akraness, Borgarness og Reykjavíkur.Lesa meira

true

Versta veðrið á norðvesturhluta landsins

Í ábendingu sem var að berast frá Vegagerðinni segir að frá Vestfjarðakjálkanum, suður í Dali og á Snæfellsnes, er spáð norðaustanátt, allt að ofsaveðri, frá því um hádegi í dag og þar til seint í kvöld. Mikil snjókoma og hríðarveður verða á fjallvegum. Norðanlands er síðan reiknað með ofankomu og skafrenningi allt niður undir byggð,…Lesa meira

true

Samherji kaupir Bjarna Ólafsson AK

Samherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Skipið var afhent í Neskaupstað í gær og heldur þaðan beint til síldveiða. Gert er ráð fyrir að skipið komi til heimahafnar á Akureyri á næstu vikum. Þá verður því gefið nýtt nafn, en það fer í hefðbundið viðhald og undirbúið…Lesa meira

true

Bandero var dregið til hafnar í Reykjavík

Bandero, skip Paul Watson samtakanna, var undir kvöld í gær dregið frá Akraneshöfn til hafnar í Reykjavík. Það var gert af öryggisaðstæðum í ljósi slæmrar veðurspár. Bandero hefur legið við bryggju á Akranesi frá því í ágúst en áður hafði Landhelgisgæslan kyrrsett skipið í kjölfar ógnandi aðgerða skipverja við að torvelda hvalveiðar. Það voru Faxaflóahafnir…Lesa meira

true

Vonskuveður víða um land

Undir morgun tók að hvessa við suðurströnd landsins og síðan færðist veðrið norður um. Óvenjulega djúp og kröpp lægð einkennir veðrið í allan dag. Búast má við að versta veðrið verði á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn. Viðvaranir, gular og appelsínugular, eru í gildi um allt land vegna hvassviðris og úrkomu, sem…Lesa meira