
Vonskuveður víða um land
Undir morgun tók að hvessa við suðurströnd landsins og síðan færðist veðrið norður um. Óvenjulega djúp og kröpp lægð einkennir veðrið í allan dag. Búast má við að versta veðrið verði á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn. Viðvaranir, gular og appelsínugular, eru í gildi um allt land vegna hvassviðris og úrkomu, sem með kvöldinu breytist í hríð. Alls staðar er mælt með því að fólk komi lausamunum í skjól og víða verður lítið eða ekkert ferðaveður.
Spásvæði Breiðafjarðar var í gær bætt við yfir appelsínugular viðvaranir. Þar verður versta veðrið frá klukkan 11 til 17 í dag með lýsingunni: „Norðaustan og síðar norðan 20-28 m/s með mjög snörpum vindhviðum. Talsverð rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Ekkert ferðaveður. Lausamunir geta fokið.“
Vindur er nú vaxandi um vestanvert landið og til þess að gera fáir á þjóðvegum. Við Hafnarfjall og á Kjalarnesi fer vindhraði vaxandi, fer í hviðum upp í 35 metra á sekúndu. Umferð er um þessa vegi, en lítil samkvæmt umferdin.is Hér á Vesturlandi eru Vatnaleið, Svínadalur, Brattabrekka og Holtavörðuheiði á óvissustigi Vegagerðarinnar frá klukkan 10.
Lögreglan á Vesturlandi biðlar til fólks að vera ekki á ferðinni að óþörfu og huga vel að veðurspám áður en lagt er af stað milli byggðarlaga.